Hlátrasköllin og bakföllin voru svo að segja til vandræða við upptökur á spjallþættinum hans Karls Ágústs Úlfssonar í dag, en Helgin hans klukkan 20:00 verður glaðværðin uppmáluð.
Er nema von? Gestir Karls Ágústs að þessu sinni eru Ari Eldjárn skemmtikraftur og Guðrún Gunnarsdóttir söngkona og útvarpsmaður sem kunn er af kerskni sinni og léttleika. Ásamt umsjármanninum fara þau yfir sviðið og greina það sem hæst bar í vikunni sem er að líða, en deila einnig með áhorfendum hvað helst hefur borið á góma í þeirra daglega lífi.
Ekki má gleyma inngangsorðum Karls Ágústs í þættinum sem eru orðni fræg að endemum en þar dregur hann sa,félag sitt sundur og saman í beittara háði en sumir þola.
Helgin er frumsýnd klukkan 20:00 í kvöld.