Útlit er fyrir að skráð félög greiði um 19,5 milljarða króna til hluthafa sinna vegna reksturs 2017, eða tæplega 40 prósent af hagnaði ársins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Greiningardeild Arion banka. Stærsta félagið á markaði, Marel, greiðir stærstu arðgreiðsluna.
Í frétt ruv.is í morgun um málið segir að samkvæmt þessu séu arðgreiðslur því enn að dragast saman bæði í krónum talið og í hlutfalli af markaðsvirði félaganna. Arðgreiðslur hafi náð hámarki árið 2016.Greiningardeildin segi að með nokkurri einföldun megi segja að fjárfestir sem keypt hafi körfu hlutabréfa í Kauphöll Íslands fái nú kaupverðið endurgreitt á tæpum 42 árum árum samanborið við 26 ár árið 2016.
Í samantekt greiningardeildarinnar kemur fram að af félögunum greiði stærsta félag hlutabréfamarkaðarins, Marel, stærstu arðgreiðsluna, eða rúmlega 3,6 milljarða króna sem samsvarar 30 prósentum af hagnaði síðastliðins rekstrarárs. Þar á eftir koma Reitir og TM með um 2,5 milljarða króna.