Árásarmaðurinn drepinn, 3 aðrir létust

Manuel Macron forsætisráðherra hyllti í dag framgang lögreglumanna í Suður Frakklandi sem tókust á við byssumann sem tók átta gísla í verslunarmiðstöð í bæ milli borganna Toulouse og Montpellier um hádegisbilið. Árásarmaðurinn var skotinn til bana. Macron fjallaði um atvikið á fréttamannafundi á leiðtogafundi ESB og sagði þetta líta út fyrir að vera hryðjuverkaárás.

Samkvæmt BBC eru þrír aðrir látnir í átökunum og 16 særðir, þar af tveir alvarlega. Svo virðist sem maðurinn hafi skotið á fólk á leiðinni inn í verslunarmiðstöðina.

Árásarmaðurinn er talinn vera frá Marakkó. Hann hét Redouane Lakdim og var 26 ára. Hryðjuverkasamtökin Ríki Íslams segja árásina hafa verið á sínum vegum.