Barnayfirvöld vista nú árásargjarnan ungling, dreng með þroskafrávik. Drengurinn er beittur sértæku úrræði yfirvalda vegna fjölmargra kynferðisbrota og tilrauna til brota.
Frá þessu greinir Fréttatíminn.
Segir í frétt blaðsins, sem kom út í fyrsta skipti í dag undir ritstjórn Gunnars Smára, að um ræði róttæka aðferð hjá barnayfirvöldum. Drengurinn hafi brotið af sér gegn öðrum börnum og sé hann vistaður í sérstöku húsnæði án foreldra sinna. Honum sé fylgt í og úr skóla og sé í raun aldrei eftirlitslaus.
Kemur fram að afbrigðileg kynhneigð drengsins hafi staðið yfir í töluverðan tíma en afar sjaldgæft mun að svona úrræði sé beitt.