Árangursríkasta þing sögunnar!

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra sagði í Eldhúsdagsumræðum á Alþingi í gærkvöld. í aðdraganda þingloka, að árangursríkasta þing sögunnar væri senn að baki.
 
Hann gaf lítið fyrir allt tal stjórnarandstöðunnar um að lítil samstaða væri í ríkisstjóorn og að á þinginu væri meirihlutaræði og gerræði og mál væru lögð fram í ófriði: \" fyrsta lagi er það ekki fyrir stjórnarandstöðuna að greina hvernig samstaðan er í ríkisstjórninni, enda tekst henni ákaflega illa til í því. Samstaðan í ríkisstjórninni er ákaflega góð, eins og við sjáum á því að við erum að klára hér eitthvert áragursríkasta þing síðari ára, ef ekki áratuga,“ sagði Sigmundur í samtali við RÚV eftir umræðurnar.
.

Hann tók það fram í öðru lagi að það væri eðlilegt að það væri ágreiningur í þinginu. „Það er ekkert nýtt. Hins vegar hafa ekki verið sérlega mörg ágreiningsmál núna. Það hafa verið tvö þrjú tiltölulega stór ágreiningsmál núna á lokasprettinum. En þar fyrir utan eru langflest mál afgreidd hér í sæmilegri sátt. Svoleiðis að þetta er eitthvað standup prógramm sem menn þylja upp,“ sagði hann.

„En við látum það ekki trufla okkur enda er miklu betra að hlusta á slíkt prógramm heldur en raunverulega gagnrýni á ríkisstjórnina. Enda er hún ekki til. Hana skorti algjörlega í ræðum stjórnarandstöðunnar,“ bætti hann við.

En hvað finnst þér um hugmyndir um að mál séu undirbúin betur og ekki lögð fram í jafnmiklum ófriði og gert hefur verið?

\"Langflest mál hafa ekki verið lögð fram í ófriði eins og ég nefndi áðan. En það er ekki hægt að gera ráð fyrir því að það sé samstaða um öll mál í þinginu milli stjórnar og stjórnarandstöðu,“ sagði Sigmundur. „Langflest mál hafa verið afgreidd í friði. Þau sem ekki ríkir sátt um, úr þeim hefur verið leyst á einn eða annan hátt.“

Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar tók ekki undir að gagnrýni stjórnarandstöðunnar væri ekki raunveruleg. \"Við höfum sett fram ítarlega og rökstudda gagnrýni á gerðir þessarar ríkisstjórnar. Aukinn ójöfnuð í hagkerfinu, úrræðisleysi í heilbrigðiskerfinu og svo framvegis. En við höfum auðvitað líka verið að standa í mikilvægri vörn til þess að koma í veg fyrir að hér færi í gegn til dæmis breyting á rammaáætlun sem hefði brotið þá grundvallar samstöðu sem við höfum byggt upp um vernd náttúrusvæða. Okkur tókst það,“ sagði Árni.

Árni segir að hann vildi gjarna beita sér fyrir því að það ríkti minna meirihlutaræði á þingi. \"Ég hef margsinnis talað um það, líka þegar ég var sjálfur í meirihluta. Það er mjög mikilvægt að þriðjungur Alþingis geti vísað málum í þjóðaratkvæðagreiðslu. Þá gætum við bundið enda á þennan langa ræðutíma.“