„Stórkostlegur árangur. Miðað við sjómennskuna, sem er eitt hættulegasta starf í heimi, þá hefur árangur Íslendinga verið mjög mikill,“ segir Þórólfur Árnason forstjóri Samgöngustofu og vísar til þess að enginn Íslendingur hefur farist í sjóslysi á síðustu tveimur árum.
Þórólfur er gestur Sigmundar Ernis í frétta- og umræðuþættinum 21 á Hringbraut í kvöld, þar sem hann ræðir þennan árangur.
Sjóslysum hefur farið ört fækkandi á síðustu áratugum. Aðspurður um hverju megi þakka þennan stöðugt batnandi árangur segir Þórólfur: „Þetta eru 20-30 atriði samþættandi. Það eru náttúrulega miklu betri skip, betri veðurlýsingar og veðurspár, fiskisókn er skynsamari og sumir hafa sagt að skynsamleg veiðistjórnun hafi þátt í því, hugarfar sjómanna með fræðslu og forvörnum hefur haft mikið að segja, Landhelgisgæslan og allar slysavarnasveitirnar allt í kring um landið, þannig að stöðugleiki skipa er allt annar en hann var.“
Þórólfur segir hugarfarsbreytingu hafa átt sér stað. „Það var misskilin karlmennska. Fjölmennar fjölskyldur, þeim fannst bara allt í lagi að missa nokkra drengi í hafið. Á síðustu öld voru um 4.000 manns sem fórust, það voru um 40 mannslíf á ári. Það þurrkuðust út heilu fjölskyldurnar. Það er sem betur fer allt annað hugarfar nú. Við segjum stundum að bestu varðmenn sjómannanna okkar eru fjölskyldurnar heima sem minna á: „Er búið að skoða þetta?“ „Er búið að skoða hitt?“ Þannig að pressan þarf að koma frá heimilunum.“
Nánar er rætt við Þórólf í 21 í kvöld. Þátturinn hefst klukkan 21:00.