Viðar Garðarsson markaðsráðgjafi segir árangur landsliðsins á EM vera ómetanlegan: „Það er erfitt að spá um það með nákvæmni í augnablikinu en ljóst er að liðið og stuðningsmenn hafa vakið mikla athygli víða um veröld. Sú athygli gæti, ef vel er á haldið orsakað enn skarpari vöxt í komu erlendra ferðamanna til landsins.“
Viðar segir að nú reyni á hvernig spilað verði úr þeirri miklu og jákvæðu kynningu sem Ísland hefur fengið. Tækifærin séu til staðar og þau beri að nýta.
„Þetta leiðir hugann af þeirri staðreynd að stuðningur ríkisins við afreksíþróttafólk á Íslandi er mjög takmarkaður. Réttindi þess mjög skert og því fórn þeirra fyrir það að koma fram fyrir hönd þjóðarinnar er oft á tíðum mjög mikil. Sem betur fer á þetta ekki við um knattspyrnulandsliðið því það er skipað leikmönnum sem hafa atvinnu af því að vera íþróttamenn. KSÍ hefur lýst því yfir að leikmenn fái greiðslur fyrir þátttöku sína fyrir fé Evrópska knattspyrnusambandsins og er það vel.“