Áramót: úrkomubakki yfir borginni

Úrkomubakki verður yfir höfuðborgarsvæðinu á miðnætti þegar landsmenn verðaa í óða önn að skjóta upp flugeldum sínum. Svipaða sögu er að segja af mipju Austurlandi, en bjart veður verður um Vestfirði og allt Norðurland.

Veðurstofan gerir ráð fyrir suðlægri átt framan af Gamlársdegi, víða 8 til 15 m/s og él um sunnan og vestanvert landið, en að mestu verður þurrt um norðaustanvert landið. Síðdegis snýr hann sér í suðaustan 10 til 18 m/s, en þá verður hvassast austanlands og úrkomumeira um tíma, en suðlægari vindar blása um landið sunnan- og vestanvert seint í kvöld og dregur þá heldur úr vindi. Hiti verður um frostmark.

Á nýársdag verður sunnan 5 til 13 og áfram él sunnan- og vestantil, en annars þurrt að kalla. Veður fer heldur kólnandi.