Ár bætist við fyrri dóm sigurðar

Sigurður Einarsson fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings var dæmur í dag í ársfangelsi fyrir þátt sinn í stóra markaðsmisnotkunarmálinu og kemur það til viðbótar við fjögurra og hálfs árs dóminum sem hann fékk fyrir Al Thani málið.

Hreiðari Má Sigurðssyni, fyrrverandi forstjóri Kaupþings, var ekki gerð frekari refsing umfram dóminn sem hann hlaut í Al Thani-málinu vegna sama máls, en Hreiðar hafði áður verið dæmdur í fimm og hálfs árs fangelsi fyrir Al Thani-málið. 

Ingólfur Helgason, fyrrverandi forstjóri Kaupþings á Íslandi, var dæmdur í fangelsi í fjögur og hálft ár fyrir markaðsmisnotkunarmálið en hann var ekki á meðal ákærðu í Al Thani málinu.

Magnús Guðmundsson, sem var forstjóri Kaupþings í Lúxemborg, var einnig ákærður fyrir umboðssvik en ákveðnum hlutum ákærunnar á hendur honum var vísað frá dómi. Var hann sýknaður af þeim ákæruliðum sem stóðu eftir.

Bjarki Diego, sem sat í lánanefnd Kaupþings, var dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir umboðssvik.

Einar Pálmi Sigmundsson, sem var forstöðumaður eigin viðskipta Kaupþings, hlaut tveggja ára skilorðsbundinn dóm. Pétur Kristinn Guðmarsson og Birnir Sær Björnsson, starfsmenn eigin viðskipta, hlutu 18 mánaða skilorðsbundinn dóm.

Þá var Björk Þórarinsdóttir sem sat í lánanefnd bankans sýknuð af ákæru um umboðssvik.