Bandaríski tæknirisinn Apple hefur birt fallegt jólamyndband og myndir á Instagram-síðu sinni í samstarfi við íslenska ljósmyndarann Sögu Sig og kvikmyndagerðarmanninn Ágúst Jakobsson. Myndirnar, sem allar eru teknar á iPhone síma, eru teknar á Íslandi og fanga svipmyndir jólanna hér á landi í fallegu myndbandi.
Myndbandið heitir „Icelandic Winter Lights“ eða Íslensk vetrarljós og segir frá þeirri hefð Íslendinga að heiðra minningu ástvina yfir jólatímann. Þar kemur fram að við Íslendingar höfum lært að lifa í myrkrinu og náttúrunni, talað um trú okkar á álfa og huldufólk sem og þá sterku trú á að ástvinir lifi áfram með okkur eftir dauðann.
Nánar á
http://www.visir.is/g/2018181229412