Hljómsveitin Apparat Organ Quartet heldur tónleika á Kex Hostel næstkomandi fimmtudagskvöld kl. 21:00. Frítt er inn á tónleikana.
Hljómsveitin hefur undandfarið verið að undirbúa ferðalag til Kanada, þar sem mun hún spila tvennum tónleikum, annarsvegar í Toronto þar sem hún mun leika Drake Hotel og hins vegar NOW hátíðinni á Íslendingaslóðum í Winnipeg. Það ríkir mikil eftirvænting innan hljómsveitarinnar fyrir því að skemmta á slóðum Vestur-Íslendinga.
Það verða nokkur splunkuný lög dagskránni á fimmtudaginn. Apparat hefur ekki komið mikið fram að undanförnu, en síðast lék sveitin Karlsvöku sem haldin var Eldborgarsal Hörpu september síðasta ári og þar áður Iceland Airwaves árið 2013.
Frítt er inn á tónleikana á fimmtudaginn og má búast við að færri komist að en vilja.