Annar þáttur af Skrefinu lengra verður sýndur á sunnudagskvöld. Hér eru á ferðinni einkar skemmtilegir og fræðandi þættir þar sem Snædís Snorradóttir dagskrárgerðarkona mun kynna fyrir áhorfendum námsleiðir og námskeið sem hægt er að sækja.
Í öðrum þætti lætur Snædís dáleiða sig. Hún ræðir við Jón Víðis dáleiðara og kennara hjá Dáleiðsluskóla Íslands. Nýtt grunnnámskeið í dáleiðslu hefst 8. febrúar.
Einnig sest Snædís á skólabekk þegar hún heimsækir Endurmenntun HÍ. Þar kynnir hún sér þau fjöldamörgu fróðlegu námskeið og námsleiðir sem eru í boði og ræðir við Áslaugu Björt Guðmundardóttur viðskiptastjóra hjá Endurmenntun.
Þá heimsækir Snædís markþjálfunarfyrirtækið Evolvia, þar sem Matilda Gregersdotter og Matti Ósvald Stefánsson leiða Snædísi í allan sannleikann um hvað markþjálfi er og segja henni líka frá markþjálfanáminu sem Evolvia býður upp á. Nýtt markþjálfanámskeið hefst 7. febrúar.
Skrefinu lengra er á dagskrá Hringbrautar öll sunnudagskvöld klukkan 21:00.
Stikla fyrir þáttaröðina: