Annar íslendinganna í mehamn neitar sök

Íslendingarnir tveir sem grunaðir er um að hafa orðið karlmanni að bana í bænum Mehamn í Norður-Noregi aðfararnótt laugardags verða leiddir fyrir dómara á morgun. Þar verður farið fram á gæsluvarðhald á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Annar þeirra neitar sök í málinu.
 

Tilkynning um að maður hafi orðið fyrir skoti barst laust fyrir klukkan hálf sex á laugardagsmorgun. Þegar lögregla kom á vettvang fannst maður illa haldinn. Endurlífgunartilraunir báru ekki árangur og var hann úrskurðaður látinn á staðnum.

Maðurinn var fertugur Íslendingur, búsettur í Noregi.  Sá sem lést og annar hinna handteknu eru bræður.

Nánar er fjallað um málið á RÚV.