„Annað hvort er maður ráðherra eða ekki. Hún einfaldlega fer frá sem ráðherra og nýr ráðherra kemur í hennar stað. Það er svo auðvitað lögformlega sérstök ákvörðun á nýjan leik að setja hana inn aftur. Hins vegar getur það verið pólitísk samkomulag milli flokkanna að hún komi inn síðar. En það er auðvitað ekkert sem heitir stjórnskipunarlega að geyma stólinn fyrir einhvern.“
Þetta sagði Eiríkur Bergmann Einarsson, prófessor í stjórnmálafræði, um ákvörðun Sigríðar Á. Andersen að stíga til hliðar úr embætti dómsmálaráðherra í gær. Eiríkur var gestur Þórðar Snæs Júlíussonar, ritstjóra Kjarnans, í frétta- og umræðuþættinum 21 á Hringbraut í gærkvöld. Þar ræddi hann þessa ákvörðun og einnig þá fordæmalausu stöðu sem er komin upp vegna Brexit. Kjarninn greindi frá.
Sigríður tók þessa ákvörðun þar sem hún telur að á meðan Landsréttarmálinu vindi fram, í kjölfar úrskurðar MDE um að fjórir dómarar við Landsrétt hafi verið ólöglega skipaðir, sé æskilegt að annar en hún verði í forsvari, enda sé henni annt um að ekki sé grafið undan trúverðugleika íslenskra dómstóla. Eiríkur bendir þó á, eins og áður segir, að ekki sé hægt að stíga tímabundið til hliðar sem ráðherra.
Boðað hefur verið til ríkisráðsfundar á Bessastöðum í dag og býst Eiríkur við því að Sigríður muni þar fara úr ríkisstjórn og að nýr dómsmálaráðherra úr röðum Sjálfstæðisflokksins verði skipaður í staðinn.
Viðtalið við Eirík í heild sinni er að finna hér: