Annað hrun er óumflýjanlegt!

Rithöfundurinn Jóhannes Björn sem skrifaði eina umtöluðustu þjóðmálarýni seinni áratuga í bók sinni Falið vald árið 1979 segir að ný fjármálakreppa sé óumflýjanleg; hrá peningaframleiðsla endi alltaf á einn veg.

Jóhannes skrifar ítarlegan pistil í nýjasta eintak Stundarinnar sem var að berast á sölustaði, en þar fjallar hann um gríðarlega skuldsetningu í hagkerfum velflestra þeirra þjóðríkja sem telja sig vera með þróað efnahagsumhverfi. Hann rekur söguna og segir hagkerfi þessara landa ganga reglulega í gegnum efnahagslægðir þegar þau \"ofhitna\" og vaxandi verðbólga neyði seðlabanka þeirra til að draga úr eftirspurn með hærri stýrivöxtum.

Og sagan endurtaki sig aftur og aftur; síðan 2007 hafi skuldirnar í hagkerfum heimsins vaxið um tæpar 60 trilljónir bandaríkjadala og skuldir á efnahagsreikningum seðlabanka heimsins hafi hækkað úr þremur trilljónum dala í 22 trilljónir dala á síðustu 15 árum.

Hann segir svokallaða \"magnaukningu\" peninga sem nokkrir stærstu seðlabankar heimsins hafi staðið fyrir sé ekkert annað en tilfærsla auðæva; skuldir gjaldþrota banka hafi í rólegheitum verið færðar yfir á herðar fólksins: \"Með því að kaupa ríkisskuldabréf milliliðalaust, sem er ekkert annað en hrá peningaprentun hafa seðlabankar lækkað vexti niður á núllið með handafli.\" Allir sem eigi sparifé eða sjóði í banka hafi misst af innlánsvöxtum árum saman og nemi tapið hundruðum milljarða dala.

Hann segir að frá haustinu 2008 hafi hagkerfi heimsins einkennst af spákaupmennsku og pappírssgróða banka. \"Fyrirtæki hafa líka tekið sér far á hringekjunni og notað ódýrari peninga til þess að kaupa önnur fyrirtæki frekar en að reisa verksmiðjur með tilheyrandi innspýtingu í atvinnulífið. Sem dæmi um hversu afstæðir hlutirnir eru þá gat stórfyrirtækið Nestlé nýlega slegið lán á skuldabréfamarkaði sem bar neikvæða vexti. Einhverjir aðilar borguðu fyrirtækinu fyrir að fá að lána því peninga,\" skrifar Jóhannes Björn.

Hann segir að hagkerfið hafi hrunið vegna ofurskulda og því hafi síðan verið haldið gangandi með miklu meiri skuldum - og hann hvetur almenning til að láta ekki blekkjast af þeim sem haldi því fram að allt sé með felldu: \"Þetta kerfi hrynur og það er ekki langt í að hjörðin snúi baki við ruslabréfum sem bera fáránlega lága vexti og ríkisskuldabréfum sem seðlabankar niðurgreiða. Draumurinn um að uppskera hagsæld og endalausan hagvöxt með hrárri peningaframleiðslu hefur oft skotið upp kollinum síðan menn lærðu að sletta bleki á annars verðlausan pappír ... en sá draumur hefur alltaf endað með óskaplegri martröð.\"