Skólaárið 2012-2013 brautskráðust færri nemendur úr skólum á Íslandi en árið á undan, bæði á framhalds- og háskólastigi. Brautskráðum háskólanemum fækkaði um 78 (-1,9%) frá fyrra ári og er þetta annað árið í röð sem brautskráðum háskólanemum fækkar.
Þetta kemur fram í nýbirtum tölum Hagstofu Íslands, en þar segir jafnframt að á framhaldsskólastigi hafi brautskráðum nemendum fækkað um 238 frá fyrra ári, eða 3,9%.
Brautskráðir doktorar voru 56 á skólaárinu, 29 karlar og 27 konur, sem er fjölgun um 15 frá fyrra ári, eða 36,6%. Aldrei áður hafa fleiri lokið doktorsprófi á einu skólaári en áður höfðu mest brautskráðst 48 doktorar 2010-2011. Tæplega 40% brautskráðra doktora voru 40 ára eða eldri þegar þeir luku doktorsnámi og tæp 88% voru 30 ára eða eldri. Rúmlega einn af hverjum fjórum doktorum skólaárið 2012-2013 voru erlendir ríkisborgarar, 15 alls