Anna Þóra Björnsdóttir, eigandi gleraugnaverslunarinnar Sjáðu, greindi frá breytingum varðandi jól sín á Facebook-síðu sinni í gær.
Anna Þóra biður vini og vandamenn um að sleppa því að gefa sér jólagjafir en á sama tíma tilkynnti hún að hún ætlaði að breyta til og hætta gefa jólagjafir út um allan bæ.
„Ég er í þeirri stöðu að eiga allt eða geta keypt mér það sem mig langar í hahaha,“ skrifaði Anna Þóra í færslu sína en það eru eflaust margir sem tengja við orð hennar.