Anna steinsen: fyrirtækjamenningin stjórnar hegðun starfsmanna

Anna Steinsen, ráðgjafi og einn eigenda KVAN, er í mjög forvitnilegu viðtali við Jón G. í kvöld. Þau ræða nauðsyn liðsheilda í fyrirtækjum og góðrar fyrirtækjamenningar. Stjórnendur geta verið eldklárir í áætlunum og pælingum en vonlausir í að búa til góða fyrirtækjamenningu sem aftur leiðir til þess að starfsmenn ná ekki tilsettum árangri. Góð fyrirtækjamenning kemur ekki af sjálfu sér – og gleymum því ekki að fyrirtækjamenningin stjórnar hegðun starfsmanna á vinnustöðum. Það eru margir pyttir til að varast.

Anna er margreyndur fyrirlesari. Hún er á leiðinni norður í Miðfjörð um helgina; á Hótel Laugarbakka, með hópi kvenna til að þjálfa sig í að setja sér markmið; og rækta eiginleikann við að koma auga á styrkleika sína. Inn í þetta blandast þættir eins og hugrekki, húmor, sköpunarkraftur, einlægni og ástríða.

Þá ræða þau Jón G. sívaxandi kvíða starfsmanna – sem og unglinga. Hæfilegur kvíði er áskorun og getur leyst úr læðingi krafta en of mikill kvíði er sjúkdómur.

Spennandi viðtal klukkan 20:30 á Hringbraut í kvöld.