Stundin greinir frá því í nýju tölublaði í dag að Anna Sigurlaug Pálsdóttir, eiginkona forsætisráðherra, hafi stefnt föður sínum í desember 2006. Afrakstur þeirrar stefnu hafi orðið sá að hún hafi eignast rúman milljarð króna og hafi þá orðið yngsti milljarðamæringur landsins.
Samkvæmt Stundinni var komið málsnúmer á stefnuna fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur en sátt náðist í málinu áður en það fór fyrir dóm. Samkvæmt Stundinni má rekja stefnuna til þess að eldri bróðir Önnu Sigurlaugar hafði fengið fjármuni til fjárfestinga hjá föður systkinanna, Páli Samúelssyni, kenndum við Toyota. Fjárhæðin sem Anna Sigurlaug fékk greidda sem fyrirfram arð er geymd í félaginu Wintris Inc í skattaskjóli á Tortóla.
Fram hefur komið að Anna Sigurlaug gerði kröfur í þrotabú föllnu bankanna hér á landi sem námu um hálfum milljarði króna. Á sama tíma skipaði eiginmaður hennar, forsætisráðherrann, ráðgjafanefnd um lausnir fyrir hönd íslenska ríkisins.
Í Stundinni í dag er rætt við erlendan sérfræðing, Torsten Fenby, sem telur mál forsætisráðherra Íslands einstætt. Hann bendir á að ríkari kröfur verði að gera til siðferðis stjórnmálamanna en annarra einstaklinga.