Anna Karen: „Hefði ég setið þá fundi þar sem þetta var rætt hefðu fleiri misst starfið innan slökkviliðsins“

Anna Karen Sigurðardóttir, konan sem tók þátt í klámmyndbandinu í sjúkrabifreið í Skógarhlíð á dögunum segir í story á Intagram að hún taki ábyrgð á eigin gjörðum og þyki þetta leitt.

Fréttablaðið greinir frá.

Greint var frá því í gær að Anna Karen kallaði umfjöllun fjölmiðla „mannorðsmorð“ og virtist hóta því að svara íslenskum fjölmiðlum í sömu mynt.

„Mér dettur ekki í hug að draga úr alvarleika málsins er varðar sjúkrabílinn og vildi óska af öllu hjarta að ég gæti dregið það til baka,“ segir Anna Karen á Instagram síðu sinni.

Þá vonast hún til þess að slökkviliðið endurhugsi ákvörðun sína um að segja sjúkraflutningamanninum upp. „Ég ætla samt sem áður að benda á þá staðreynd að hefði ég setið þá fundi þar sem þetta var rætt hefðu fleiri misst starfið innan slökkviliðsins,“ segir Anna Karen.

Umfjöllunina má lesa í heild sinni á vef Fréttablaðsins.