Anna helga er fundin heil á húfi

„Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskaði eftir aðstoð fjölmiðla um að auglýsa á sínum miðlum að lögregla væri að óska eftir aðstoð við að hafa upp á Önnu Helgu Pétursdóttur. Hér með upplýsist að Anna er fundin heil á húfi.“

\"\"

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Þar segir enn fremur:

„Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskaði eftir aðstoð björgunarsveita Landsbjargar um klukkan 19:00 í kvöld varðandi leitina að Önnu. Leitað var á nokkrum svæðum sem lögreglan hafði aflað upplýsinga um að hún gæti haldið sig á.

Anna fannst síðan heil á húfi laust upp úr miðnætti heil á húfi eins og áður segir á einu þeirra leitarsvæða sem lagt var upp með að leitað yrði á.

„Að lokum þakkar lögreglan veitta aðstoð fjölmiðla í máli þessu. Ekki verða veittar frekari upplýsingar um leitina.“