Anna helga enn ófundin - nokkrar ábendingar hafa borist lögreglu

Ekkert hefur spurst til Önnu Helgu Pétursdóttur, en hún hefur ekki sést síðan á þriðjudagsmorgun. Síðast sát til hennar í nágrenni við Holtagarða í Reykjavík. Anna Helga er grannvaxin, 165 sentímetrar á hæð og með stutt, grátt hár. Hún var klædd í dökkbláar, víðar gallabuxur, brúna gönguskó og grænan/brúnan jakka. Anna Helga notar gleraugu og gæti jafnframt verið með loðhúfu á höfði.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir að nokkrar ábendingar hafi borist en lögreglan heldur áfram leitinni.

Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Önnu Helgu, eða vita hvar hún er niðurkomin, eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 112. Upplýsingum má einnig koma á framfæri í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.