Anika í áfalli og biðlar til almennings : „ég á tveggja ára son sem ég þarf að komast með á milli staða“

„Elsku þú, sá sem stakkst á dekkin hjá mér í nótt upp úr miðnætti í Grafarvogi við Beiðuvík á rauðum Lexus IS200. Ég veit ekki, kannski sérðu eftir þessu, kannski ekki. En hvað sem því líður máttu vita að þetta særði mig mjög mikið.“

Segir Anika Lind Baldursdóttir Olsen í færslu þar sem hún ávarpar þann einstakling sem tók upp á því að skera á öll dekk Aniku.

„Ég eyddi næstum aleigu minni í þessi dekk fyrir stuttu síðan svo bíllinn væri öruggur fyrir son minn. Ég á tveggja ára son sem ég þarf að komast með á milli staða sem gengur brösulega án bílsins okkar.“

Sonurinn búinn að vera mikið veikur

Anika segist ekki sjá fram á að geta keypt sér ný dekk strax og þakkar hún því þeim sem skar á dekkin fyrir það að neyðast til þess að vera bíllaus þangað til.

„Ég á ekki pening til þess að taka strætó með strákinn svo í þessum kulda verð ég að labba með strákinn út um allt. Sem er nýbúinn að losna við ljót veikindi og er enn að jafna sig. Ekki veit ég af hverju þú gerðir þetta en þú hlýtur að hafa haft þína ástæðu til þess sem ég vona svo innilega að skipti þig minna máli en að huga að barninu og gefa þig fram.“

Þá segist Anika ekki ætla að leggja fram kæru ef að einstaklingurinn gefi sig fram en nágranni hennar sá glitta í þann sem skar á dekkin.

„Líklega ertu lítill, dökkhærður á dökkbláum eða svörtum VW Golf. Gefðu þig nú fram svo við getum afgreitt þetta sem fyrst á góðan hátt.“

Hafi fólk grunsemdir fyrir því hver framdi verknaðinn biðlar Anika til fólks að hafa samband við sig.