Andstyggileg skoðanakúgun

Segja má að það hafi haft meiri afleiðingar að Frosti Logason skyldi bregða sér á miðilsfund, lýsa reynslu sinni í útvarpsþættinum Harmageddon og ræða opinskátt við miðilinn það sem Frosti telur ljótan leik, pretti og fals.

Kirkjunnar þjónar hafa nú hver á fætur öðrum fordæmt orð Frosta og tekur félagi hans í Harmageddon, Máni Pétursson til varna, enda sér Máni ekki annað en að prestar sem hafa mest sitt lífsviðurværi af skattfé landsmanna með boðun sinni á fyrirbæri sem ekki hafa verið sönnuð að sé til, séu að hvetja til þess að vinnan verði höfð af starfsmönnum Stöðvar 2.

Eyjan sagði frá því í gærkvöld að tveir prestar, Guðrún Karls Helgudóttir og séra Jóna Hrönn Bolladóttir, prestur í Garðabæ, hefðu fordæmt Frosta og Stöð 2 sem sýndi viðtalið við Frosta og Önnu Birtu Lionaraki. Eyjan vitnar til fésbókarfærslu  séra Guðrúnar þar sem segi: „Hann [Frosti] var dónalegur og illgjarn í athugasemdum sínum og ég sá þarna mann sem sparkaði í liggjandi konu. Hún reyndi ekki einu sinni að verja sig því hún átti ekkert í þessa hrokafullu kappræðulist sem maðurinn stundaði þarna. Ég held að það hafi alveg gleymst að ala þennan dreng upp og kenna honum virðingu fyrir náunganum.“

Hún bætir við:  „Ef þetta er það sem Stöð2 ætlar að bjóða upp á í framtíðinni þá er ég nokkuð viss um að áskrifendum mun fækka. Get ekki ímyndað mér að fólk hafi áhuga á að horfa á svona ofbeldi í beinni útsendingu í boði áskrifenda.“

Jóna Hrönn tekur undir og skrifar: „Ég hvet fólk til að hætta að versla við Stöð 2 meðan þeir gaukar tveir stýra umræðunni.“

Þetta telur Máni Pétursson mjög alvarleg ummæli. Í ítarlegri færslu í gærkvöld á facebook skrifar hann að Jóna Hrönn Bolladóttir sé prestur í heimabæ hans Garðabæ. Hann segist hafa borið virðingu fyrir henni en sú virðing sé nú úr sögunni.

„Kona sem hefur í nafni kirkjunnar þegið milljónir frá sveitarfélaginu Garðabæ. Hér erum við ekki að tala um neinar smá upphæðir heldur upphæðir sem telja á tugum milljóna.“

 Fyrir vikið hafi Jóna Hrönn ríka hagsmuni að verja. Máni skrifar að þótt hann hafi oft gagnrýnt sjálfstæðismenn í Garðabæ hafi þeir aldrei haft uppi ein andstyggilega og ógeðfellda skoðanakúgun og Jóna Hrönn.  Hún kalli sig umboðsaðila kærleika og auðmýktar en fari þó fram á að fólk sniðgangi fyrirtækið sem hann vinni hjá þar til hann verði rekinn.

„Fyrir hvað? Jú fyrir að vera ekki með sömu skoðun og hún. Þetta er skoðanakúgun, boycott, arbeitverbot. Ég er algerlega orðlaus ekki er ég reiður en mikið er ég sár. Vonbrigði mín eru slík að á morgun mun ég skrá mig úr þjóðkirkjunni,“ skrifar Máni meðal annars og spyr hvort skoðanakúgunin sé í kristilegum anda?