Andstaðan tætir í sig fjármálaáætlun

Stjórnarandstaðan tætir í sig fimm ára fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar sem var kynnt í gær.

Þorsteinn Víglundsson, þingmaður Viðreisnar, kallar hana algjörlega óraunhæfa og óábyrga. „Fjármáladraumsýn er í raun réttnefni á hana,“ segir hann í samtali við RÚV. Hann segir gert ráð fyrir nær fordæmalausri útgjaldaaukningu á næstu fimm árum en samtímis séu kynntar fyrirhugaðar skattalækkanir. Forsendurnar um hagvöxt sem byggt sé á áætluninni séu allt of bjartsýnar. Ef þær ganga eftir þá er um að ræða einstakan atburð í íslenskri hagsögu og engin leið sé að ráða við aukin útgjöld án umtalsverðra skattahækkana.

Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, segir áætlunina staðfesta hægri stefnu Sjálfstæðisflokksins og segir töluverð vonbrigði að sjá ekki dýpri fingraför VG á plagginu. Ekki sé gert ráð fyrir aukningu í barna- og vaxtabætur og dregið úr stuðningi við félagslega leiguuppbyggingu.

Björn Leví Gunnarsson hjá Pírötum segir áætlunina eins og þá síðustu og gefur lítið fyrir innviðauppbygginguna. Í samgöngumálum jafngildi aukin framlög til dæmis aðeins einum jarðgöngum. Hann segir tekjustofna ekki styrkta og skattalækkunin gagnist betur þeim tekjuhærri. „Og svo eru þau meira að segja að fara að lækka framlag til húsnæðismála sem er eitt stærsta vandamálið í landinu.“

Inga Sæland formaður Flokks fólksins segist ekki sjá eina einustu krónu sem eigi að setja í fólkið sem býr við bágustu kjörin.