Andstaðan við sölu bjórs og léttvíns í matvörubúðum hefur aukist á milli ára að því er fram kemur í Fréttablaðinu í dag, en blaðið ber þar saman nýja könnun sína við sambærilega könnun sem það tók fyrir ári.
Þegar einungis eru skoðuð svör þeirra sem afstöðu taka sést að nú eru 62 prósent aðspurðra andvíg því að heimila sölu á bjór og léttvíni í matvöruverslunum, en 38 prósent eru því fylgjandi. Þegar spurt var í mars í fyrra voru 55 prósent andvíg en 45 prósent voru fylgjandi.
Andstaðan er meiri meðal kvenna en karla. Rétt rúmlega 70 prósent kvenna eru andvíg því að selja áfengi í verslunum en tæplega 30 prósent eru því fylgjandi. Aftur á móti er rétt rúmlega helmingur karla því andvígur. Þegar skoðuð eru svör eftir aldri sést að 75 prósent þeirra sem eru fimmtíu ára og eldri eru andvíg því að bjór og léttvín sé selt í matvöruverslunum en 35 prósent fylgjandi. Aftur á móti er einungis 51 prósent þeirra sem eru á aldrinum 18-49 ára andvígt því að heimila sölu á bjór og léttvíni í matvöruverslunum.