Andris kal­vans er týndur: lög­regla óskar eftir að­stoð

Maðurinn sem leitað hefur verið að í Heydal á Snæfellsnesi frá 30. desember heitir Andris Kal­vans og er fæddur árið 1962. Hann kemur frá Lettlandi en er búsettur í Reykjavík. Leit verður fram­haldið í dag en lög­reglan á Vestur­landi biður þá sem telja sig hafa vit­neskju um ferðir Andris um að hafa sam­band sím­leiðis eða á Face­book.

Ekkert hefur heyrst frá Kal­vans síðan fyrir helgi. Hann er sagður vanur fjall­göngu­maður en litlar sem engar upp­lýsingar liggja fyrir um ferðir hans, né hvernig hann var búinn.

Stærri leit er fyrir­huguð að Kal­vans á morgun.