Andri vann 40 milljónir í lottó – öryrki sem var í miklum fjárhagsvandræðum

Laugardaginn 13. apríl, var einn með allar tölur réttar, á miða sem hann keypti í Olís á Siglufirði. Vinningshafinn heitir Andri Hrannar Einarsson, þáttastjórnandi í þættinum Undralandið, á FM Trölla. Frá þessu er greint á Trolli.is

Þar kemur fram að Andri hefur átt erfitt fjárhagslega í gegnum árin. Auk þess er hann öryrki eftir æxli sem hann fékk við mænuna fyrir löngu síðan. Andri sagði sögu sína á vefsíðunni Trolli.is

„Föstudagskvöldið 12. apríl var sýning á leikritinu Bót og betrun hjá Leikfélagi Fjallabyggðar, ég tók þátt í sýningunni.

Rétt áður en ég renndi yfir á Ólafsfjörð til að leika skaust ég á Olís á Sigló til að fá mér einn hamborgara svo ég væri ekki svangur á sýningunni. Þegar ég var að fara að renna kortinu í gegn, sá ég að lottó potturinn stefndi í 40 milljónir og ákvað að smella mér á einn miða.

Ég hafði oft keypt miða og geymdi þá yfirleitt í bílnum og lét fara yfir þá á bensó þegar ég mundi eftir því.

Laugardaginn 13. apríl var síðan önnur sýning kl. 16 og eftir hana keyrði ég heim ásamt Víbekku systur. Ég var svo ekkert að spá í miðanum þannig séð, hann var bara í bílnum. Ég lagði mig svo eftir að ég kom heim og vaknaði stuttu eftir útdráttinn. Þegar ég leit á símann minn þá sá ég að það var verið að kommenta og like-a nokkuð mikið á frétt á Trölli.is. Ég opnaði fréttina og sá að hún fjallaði um lottóvinning sem hafði komið á miða sem var seldur á Olís á Siglufirði. Ég mundi þá eftir miðanum mínum sem var úti í bíl, svo fóru af stað hugsanir sem innihéldu, humm gæti það verið?, neee það getur ekki verið og svo framvegis.“

Kom síðan í ljós að Andri hafði unnið stóra vinninginn.

„Ég fór niður til mömmu og pabba og settist niður hjá þeim og bara brosti, svo sagði ég þeim að ég hafi verið að vinna tæpar 40 milljónir í lottóinu. Vá ég var ennþá bara dofinn og trúði þessu varla. Ég og mamma fórum aftur yfir tölurnar og það var ekkert um að villast! Ég var að vinna 40 millur!“

Andri segir:

„Ég er búinn að vera í ótrúlega miklum fjárhagsvandræðum svo lengi og hef átt erfitt með að ná endum saman og þetta hefur haft mikil áhrif á mína andlegu líðan. Þvílíkt sem þetta mun breyta mínu lífi. Nú getum við, ég og Francesca kærastan mín, verið saman án þess að þurfa að hafa stöðugar áhyggjur af næstu mánaðamótum. Það má segja að síðastliðinn apríl hafi verið nokkuð stór í mínu lífi þar sem ég varð 50 ára þann fyrsta apríl og þrettánda apríl fæ ég lottó vinning. Ég er ennþá að meðtaka þetta allt en ég er hamingjusamur og ánægður með lífið, loksins loksins loksins datt lukkan mér í hag.“

Ítarlega frásögn er að finna á Trolli.is