Andri þór markaðsmaður ársins

Andri Þór Guðmunds­son, for­stjóri Ölgerðar Eg­ils Skalla­gríms­son­ar, var kjör­inn Markaðsmaður árs­ins 2015 hjá ÍMARK, sam­tök­um markaðsfólks á Íslandi. Ólaf­ur Ragn­ar Gríms­son, for­seti Íslands, af­henti verðlaun­in í gærdag.  

\"Viður­kenn­ing­in er Ölgerðinni og mér mik­ils virði.  Hún er staðfest­ing á því fag­lega og öfl­uga markaðs- og sölu­starfi sem unnið hef­ur verið á und­an­förn­um árum sem hef­ur skilað okk­ur mik­illi hlut­deild­ar­aukn­ingu og bættri arðsemi í rekstr­in­um,“ er haft eft­ir Andra í til­kynn­ingu frá ÍMARK.

Verðlaun­in eru veitt þeim ein­stak­lingi sem þykir hafa sýnt framúrsk­ar­andi ár­ang­ur í markaðsstarfi á líðandi ári. Birna Ein­ars­dótt­ir, banka­stjóri Íslands­banka, til­kynnti úr­slit­in, en hún var kjör­in Markaðsmaður árs­ins í fyrra og er í ár formaður dóm­nefnd­ar.

Ásamt Birnu sátu í dóm­nefnd Ein­ar Ein­ars­son, fram­kvæmda­stjóri Gallup, Andrés Jóns­son, eig­andi og stofn­andi Góðra sam­skipta, Bjarni Ólafs­son, rit­stjóri Viðskipta­blaðsins, Hjalti Jóns­son, fram­kvæmda­stjóri Íslensku aug­lýs­inga­stof­unn­ar, Svan­hild­ur Kon­ráðsdótt­ir, sviðsstjóri menn­ing­ar- og ferðamála­sviðs Reykja­vík­ur­borg­ar, Val­geir Magnús­son, fram­kvæmda­stjóri Pip­ar/​TBWA, Helga Val­fells, fram­kvæmda­stjóri Ný­sköp­un­ar­sjóðs at­vinnu­lífs­ins, Dr. Friðrik Lar­sen, lektor í HÍ og formaður stjórn­ar ÍMARK, og Ásta Pét­urs­dótt­ir, fram­kvæmda­stjóri ÍMARK.