Umtalaðasti rithöfundur dagsins situr fyrir svörum í sjónvarpsþættinum Kvikunni á Hringbraut í kvöld.
Þar ræðir Björn Þorláksson við Andra Snæ Magnússon um störf hans og umhverfisvernd svo nokkuð sé nefnt. Átök við stóriðjusinna ber á góma. Andri Snær útskýrir hvað varð til þess að hann settist niður og ákvað að verja löngum tíma í að skrifa Draumalandið, harða gagnrýni á virkjana- og stóriðjustefnu Íslendinga þar sem einstæðum náttúruperlum hefur verið fórnað á altari annarra hagsmuna sem margir kenna við skammsýni og græðgi.
Andri Snær tilkynnir í dag formlega um framboð sitt til forseta Íslands en Hringbraut sagði frétt um framboðið í gær og vakti mikla athygli.
Viðtalsþáttur Björns Þorlákssonar með Andra Snæ í Kvikunni á Hringbraut í kvöld er endursýndur. Upptaka fór fram fyrr í vetur.