Gestur Sigmundar Ernis í viðtalsþættinum Mannamál á Hringbraut í kvöld kveðst alla tíð hafa verið hugfanginn af hugmyndum, en þar er kominn rithöfundurinn og umhverfisverndarsinninn Andri Snær Magnason sem þessi dægrin stefnir á Bessastaði.
Andri er Árbæingur í húð og hár og ólst þar upp á tíma stéttleysis þegar vandséð var hvort þeir sem voru að byggja einbýlishús eða bjuggu í blokkunum höfðu meira á milli handanna. Læknar og hjúkrunarfólk var allt í kringum hann frá blautu barnsbeini - og vitaskuld hefði hann átt að velja læknisbrautina af afloknu framhaldsnámi, en fjölin hans reyndist vera allt önnur eins og dyggir lesendur bóka hans þekkja hvað best.
Í samtali þeirra Sigmundar ernis er víða komið við, en meðal annars er athyglisvert að hlýða á Andra Snæ segja í smáatriðum hvernig ein hans kunnasta bók, Sagan af bláa hnettinum varð til og ferðaðist frá hugmynd til fullskrifaðs verks.
Mannamál eru á dagskrá öll fimmtudagskvöld klukkan 20:15.