Andri Snær með inn­legg í stóra Olís málið: „Fyrir­tækið er hluti af hags­muna­hópi“

Rit­höfundurinn, náttúru­verndar­sinninn og for­seta­fram­bjóðandinn Andri Snær Magna­son setti inn færslu á Twitter þar sem hann kemur með sitt inn­legg á stóra Olís málinu.

Olís til­kynnti um breytingarnar á dögunum og sagði að mark­mið þeirra væri meðal annars að tengja út­lit vöru­merkja ÓB og Olís betur saman. Sitt sýnist þó hverjum og hafa miklar um­ræður skapast meðal grafískra hönnuða um um­breytinga­veg­ferð olíu­fé­lagsins.

Andri Snær segir að við eigum að vera löngu hætt að selja bensín og segir Olís vera hluti af hags­muna­hópi sem tafið hefur um­skiptin.

„Það ætti að vera bannað að aug­lýsa bensín eins og tóbak,“ segir Andri Snær. Hann veltir því síðan fyrir sér hvað Olís lifi lengi og hvort það muni lifa af breytinguna.