\"Þá hef ég tekið stóra stökkið!\"
Þetta segir Andri Snær Magnason rithöfundur. Hann segist hlakka til að sjá sem flesta í Þjóðleikhúsinu klukkan 17 í dag.
Hringbraut greindi frá því síðdegis í gær að Andri Snær hygðist bjóða sig fram til embættis forseta Íslands og þykja stórtíðindi. Hann er höfundur Draumalandsins, hefur staðið vaktina sem umhverfissinni, starfað með Björk Guðmunsdóttur og er yngri en flestir sem hafa boðið sig fram. Andri Snær er talinn eiga mikið bakland og hefur skorað hátt í greiningu sem Hallgrímur Óskarsson ráðgjafi hjá Verdicta hefur sett fram um möguleika frambjóðenda. Um líkan Hallgríms hefur Hringbraut fjallað og sagði þar: \"Sá karl sem e.t.v. ætti besta möguleika samkvæmt greiningu Hallgríms er Andri Snær Magnason rithöfundur. Andri Snær er að mörgu leyti sterkur frambjóðandi. Sjálfsagt deila ekki allir skoðunum hans í umhverfismálum en færa má rök fyrir því að sá hópur sé ekki í meirihluta,\" sagði Hallgrímur um möguleika Andra en Halllgrímur hefur áður unnið samfélagsgreiningar sem vakið hafa athygli og er til að mynda höfundur hugtaksins \"sjónarmið sjötugra\".
Mikill fjöldi fólks er sagður að baki Andra Snæ og hefur undirbúningi við framboð hans verið líkt við framboð Þóru Arnórsdóttur árið 2012 sem um tíma virtist ætla að valta yfir Ólaf Ragnar Grímsson skv. skoðanakönnunum. Nú þegar hafa álitsgjafar stigið fram á samfélagsmiðlum og sagt að framboð Andra hljóti að verða til þess að Össur Skarphéðinsson hætti við. Þá hefur verið nefnt að fleiri sem hafi meldað sig án þess að taka ákvörðun muni e.t.v. hætta við. \"Fyrsti þungavigtarmaðurinn,\" sagði stuðningsmaður Andra Snæs í samtali við Hringbraut í gær.
Ekki er talið óhugsandi að Ólafur Ragnar Grímsson hætti við að hætta eftir þátt hans til að leysa stjórnarkrísuna í síðustu viku. Einnig hafa sumir spáð að Davíð Oddsson muni melda sig til leik í baráttunni um Bessastaði \"korteri áður en frestur rennur út\" eins og einn aðdáandi Davíðs orðar það. Hvort Ólafur Ragnar og Davíð leggja í einvígi við Andra Snær og hulduher hans á eftir að koma í ljós en flestir eru sammála um að nýtt tromp sé komið í baráttuna.
Andri Snær hefur að sögn stuðningsmanna notað tímann vel, það er langt síðan fyrst var skorað á hann. \"Hann mun ekki mæta tómhentur til leiks,\" segir einn stuðningsmanna hans.
Samantekt: Björn Þorláksson