Andri már ekki sloppinn

Þó svo að Andri Már Ingólfsson hafi sett Primera flugfélag sitt í þrot til að þurfa ekki að borga með taprekstrinum, þá er ekki þar með sagt að hann sé sloppinn. Eftirmálar gætu átt eftir að létta á buddu hans.

Dönsk og lettnesk flugmálayfirvöld og dómstólar í þeim löndum eiga eftir að fara ofan í saumana á þessu gjaldþroti. Sérstaklega verður skoðað hvort Andri Már hafi með einum eða öðrum hætti ívilnað eigin fyrirtækjum í aðdraganda gjaldþrotsins og hversu réttlætanlegt það var að selja farmiða fram á síðustu stundu.

Andri Már rekur fjölda ferðaskrifstofa á Norðurlöndunum og Heimsferðir hér á landi. Primera hefur séð um allt flug fyrir þessar ferðaskrifstofur. Daginn sem Primera var sett í þrot var búið að græja samninga við önnur flugfélög um ferðir fyrir viðskiptavinir ferðaskrifstofa Andra Más. Þeir farþegar urðu því ekki fyrir töfum þó að Primera hætti að fljúga. Slíkir samningar eru ekkert hristir fram úr erminni. Meðan á samningagerðinni stóð var því ljóst að Primera var að hætta, en samt var haldið áfram að selja farmiða með félaginu fram í tímann, eins og allt væri í stakasta lagi. Aðrir en ferðaskrifstofur Andra Más fengu ekkert að vita.

nánar á 

http://eirikurjonsson.is/andri-ma-ekki-sloppinn/