Andrés: vantar hömlur á ávísanir ávanabindandi lyfja

Þótt ókostir ávanabindandi lyfja séu miklir og andlát tíð fá þau að vera óáreitt á markaði. Skortur á reglum um lyfin er helsta ástæðan. Þetta sagði Andrés Magnússon geðlæknir á fundi Læknaráðs á dögunum. Fjallað er um erindi hans í nýjasta tölublaði Læknablaðsins. 

Fram kom í máli Andrésar að í fyrra hafi hátt í 40 manns fengið tíu eða fleiri ráðlagða dagsskammta ávísaða á dag af ávanabindandi lyfjum. 1730 einstaklingar hafi fengið meira en þrjá dagsskammta og hægt væri að áætla að þeir sem tækju reglulega þrjá eða fleiri ráðlagða dagsskammta af ávanabindandi lyfjum væru háðir þeim. Mikið álag væri á heilbrigðiskerfið vegna notkunar þessara lyfja.          

„Fyrir utan tíð andlát voru fjölmargar komur á bráðamóttökuna á síðasta ári vegna lyfjaeitrunar,“ sagði Andrés. Þær hafi verið 450 vegna lyfja almennt en vegna ávanabindandi lyfja hafi margar innlagnir verið á gjörgæslu, aragrúi innlagna vegna lyfjafíknar á Vog, fíknigeðdeild Landspítala, geðdeildir og almennar deildir.

Til ávanabindandi lyfja teljast sterk verkjastillandi lyf, svokallaðir ópíóíðar, og benzódíazepín-geðlyf. Andrés segir einnig mikinn vanda vegna örvandi metýlfenídat-lyfja sem komist í hendur þeirra sem sprauta sig með þessum lyfjum.

Andrés benti á að ópíóíðar og benzódíazepín ættu oft rétt á sér í skammtíma- og lífslokameðferð en fjölmargar rannsóknir hafi sýnt að notkun þeirra vegna langvinna verkja eða kvíða eigi ekki rétt á sér og að almennt sé lagst gegn slíkri notkun í klínískum leiðbeiningum.

Litlar skorður settar við ávísanir

„Þrátt fyrir hinar alvarlegu afleiðingar við langtímatöku þessara lyfja, og lítinn ávinning, eru litlar skorður settar við ávísanir á þau. Það er ólíkt öðrum lyfjum,“ sagði hann og tók sem dæmi tvö geðlyf; þunglyndislyfið nefazódón og geðrofslyfið clozapin.

„Það þurfti allt að 250.000 sjúklingaár til að framkalla eina lifrarbilun, sem þótti nóg til þess að nefazódón hvarf af markaði,“ sagði hann. Samt hafi lyfið haft ákveðna kosti framyfir algengustu þunglyndislyfin á markaðinum.

Andrés tók annað dæmi. „Clozapin er langöflugasta geðrofslyf sem til er og gerbreytir lífi geðklofasjúklinga. Hins vegar kom í ljós að það olli hvítkornafæð. Það var þá tekið af markaði í fjöldamörg ár,“ sagði hann. Samt sé vitað að lyfið lengi líf geðklofasjúklinga.

„Meiri líkur eru á að geðklofasjúklingar sem taka clozapin deyi í umferðarslysi en af aukaverkunum við lyfinu,“ sagði Andrés. Lyfið hafi fengið markaðsleyfi aftur gegn því skilyrði að teknar yrðu reglulegar blóðprufur þann tíma sem sjúklingurinn tekur lyfið. „En þegar við tölum um ávanabindandi lyf snýst þetta við; þótt gagnsemin við langtímanotkunina sé lítil sem engin, og ókostirnir miklir og alvarlegri, eru sáralitlar skorður settar við ávísun á þessi lyf,“ bætti hann við.

Kallar eftir skýrari reglum

Í samtali við Læknablaðið segir Andrés að hann sé ekki að leggja til að taka ávanabindandi lyf af markaði, en þörf sé á skýrari reglum. Læknar kalli einnig eftir því til að fá stuðning við að setja mörk. „Margir þeirra vilja geta sagt að reglurnar bjóði ekki upp á að viðkomandi læknir skrifi upp á meiri ávanabindandi lyf.“

Andrés bendir á að ópíóíðar séu mikilvægir við krabbameinslækningar, uppskurði og slys, en að fara þurfi að leiðbeiningum. Í flestum tilvikum eigi aðeins að nota þau í þrjá til fimm daga eftir útskrift af sjúkrahúsi eftir slys og aðgerðir. Benzódíazepín eigi að hámarki að nota í fjórar vikur, nema sérhæft teymi ákveði annað eða krabbameinslæknar.

„Rannsóknir sýna að sáralítið gagn er að þessum lyfjum til lengri tíma, jafnvel ógagn,“ segir hann og vísar til dæmis í að rannsóknir á rétt tæplega 1850 einstaklingum hafi sýnt að þeir sem fengu ópíóíða í meira en 7 daga væru helmingi líklegri til þess að hafa skerta vinnufærni eftir eitt ár en aðrir með sambærilegan áverka, sársauka og skerðingu á vinnugetu við slysið.

„Önnur stór rannsókn sýndi að ávísun ópíóíða innan 15 daga frá áverka var tengd lengri fjarveru frá vinnu, jafnvel eftir að leiðrétt var fyrir alvarleika áverka, vinnusögu og öðrum lýðfræðilegum breytum. Lengri fjarvera úr vinnu var einnig tengd stærri skömmtum af ópíóíðum.“