Andrés Ingi efast um aldurstakmarkanir að gosinu: „Mögulega gangi þetta lengra en lagaramminn leyfir“

Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Pírata varpaði fram þeirri spurningu í dag hvort verið sé að túlka lagaramma valdstjórnarinnar aðeins of frjálslega með því að banna börnum yngri en 12 ára að ganga að gosinu. En það var lögreglan á Suðurnesjum sem tók endanlega ákvörðun um bannið fyrr í dag.

Athugasemdir Andrésar má sjá hér fyrir neðan en þær birtust í svari hans til Stjörnu-Sævars sem sjálfur teiknaði upp dæmi um það hvernig aldurstakmarkanir lögreglu gætu spilast út:

Í samtali við Fréttablaðið segist Andrés þó gera sér grein fyrir því að lagaheimildir lögreglu til takmarkana á hættutímum séu teygjanlegt hugtak:

„Lögreglan hefur náttúrulega mjög víðtækar heimildir til að grípa til aðgerða á hættutímum. En ég þyrfti eiginlega að sjá það hvaða lagaheimildir það eru nákvæmlega sem leyfa það að loka á grundvelli aldurs.“ Segir Andrés og bendir á að mögulega sé hægt að vísa til 23. greinar almannavarnalaga sem segir til um valdheimildir á hættustundu.

Sjá má 23. grein hér fyrir neðan:

VIII. kafli. Valdheimildir á hættustundu.
23. gr. Almenn fyrirmæli á hættustundu.
Á hættustundu er lögreglustjóra heimilt að ákveða að taka í sínar hendur umferðarstjórn, banna dvöl eða umferð á ákveðnum svæðum, svo sem með því að girða af eða hindra umferð um þau, þ.m.t. tilteknar fasteignir, taka í sínar vörslur hættulega muni, vísa á brott eða fjarlægja fólk.

„En hvenær ertu með almenn fyrirmæli og hvenær ertu farin að búa til sértæk fyrirmæli sem rúmast þá kannski ekki innan þessarar heimildar?“ spyr Andrés og heldur áfram: „Þetta slær mig eins og vel viljað en mögulega gangi þetta lengra en lagaramminn leyfir. Ég myndi allavega vilja skoða það betur,“ segir Andrés.