Andrés fullyrðir að sjálfstæðismenn hafi haldið krísufundi eftir nýjustu kannanir: „stjórnmálin eru í kreppu“

Andrés Jónsson, almannatengill, fullyrti í Silfrinu í dag að Sjálfstæðismenn hafi haldið krísufundi í Valhöll eftir að nýjar kannanir sýndu fram á að Miðflokkurinn væri orðin stærsti flokkurinn í einhverjum landsbyggðarkjördæmum.

Hann sagðist ekki bjartsýnn á framtíð ríkisstjórnar VG, Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar og segir hana óstöðuga. Hann telur hana þó lafa en segir einhver mál hugsanlega geta komið í veg fyrir það.

Stefán Einar Stefánsson, blaðamaður á Morgunblaðinu, samsinnti Andrési og sagði það hafa áhrif á hve stutt sé í næstu kosningar.

„Það styttist í kosningar og það eru ýmis mál sem hafa verið við sjóndeildarhringinn sem verða kannski erfiðari og flóknari úrlausnar þegar að því kemur. Því ákveðnir ráðherra vilja sýna á spilin og úr hverju þeir eru byggðir. Þessi mikla keyrsla á hálendisþjóðgarð er skýrasta dæmið um það meðan dómsmálaráðherra mun vilja keyra í gegn breytingar á áfengiskaupa löggjöfinni, sem hún hefur heitið á þessu ári. Það eru mál sem er sennilegt að verði talsvert tekist á um inn í þinginu,“ sagði Stefán Einar og bætti því við að þetta væri kjörið sóknartækifæri fyrir Miðflokkinn.

Þeir geti keyrt á málum sem hinir flokkarnir eigi erfitt með að sannfæra fólk um að þeir standi fyrir.

Segir Sjálfstæðisflokkinn óskaplega afslappaðan

Stefán sagði suma flokka tilbúna til þess að selja sál sína þegar kemur að ríkisstjórnarsambandi og að þar muni reyna gífurlega á Sjálfstæðisflokkinn út af „bægslagangi heilbrigðisráðherra sem hefur fengið frítt spil til að koma á fullkomnari miðstýringu og soga alla heilbrigðisþjónustu undir verndarvæng Landspítalans.“

Egill Helgason velti því fyrir sér hvort Sjálfstæðisflokkurinn væri farinn að ókyrrast vegna skoðanakannana en Stefán Einar neitaði því.

„Sýnist þér það? Mér sýnist þeir óskaplega afslappaðir með það, sem er hreint ótrúlegt. Í raun og veru allt of værukærir. Mér finnst menn hafa verið sofandi og leyft þessu að dangla allt of lengi. Það er ólíðandi að sjá fylgi þessa gamalgróna flokks rétt slefa yfir 20 prósent í könnunum misseri eftir misseri. Bjarni þarf að bretta upp ermar með sínu fólki ef þau ætla að reyna að snúa þessu við,“ sagði Stefán.

Þá sagði hann Bjarna Benediktsson þurfa að fara að íhuga stöðu sína ef kannanirnar héldu áfram að sýna svo lítið fylgir.

Þá fullyrti Andrés að krísufundnir hafi verið haldnir í Valhöll eftir að flokkurinn fór að mælast í fleiri en einni könnun um undir tuttugu prósentum.

„Sem er auðvitað mjög mikil breyting. En á sama tíma hefur landslagið breyst eins og með Miðflokkinn, hann togar til sín,“ sagði hann og bætti við: „Ég held að menn hafi ekki enn fundið svarið, stjórnmálin eru í kreppu. Það er minni athygli á þeim.“