Andrea samdi lag um Róbert Marshall

Róbert Marshall, upplýsingafulltrúi ríkisstjórnarinnar og fyrrverandi þingmaður, varð fimmtugur á dögunum. Af því tilefni orti Andrea Sigurðardóttir, blaðamaður á Viðskiptablaðinu, nýjan söngtexta um Róbert. Um er að ræða uppfærða útgáfu af laginu Rangur maður.

„Ég reikna með því að þetta verði sungið í öllum fjallaferðum hér eftir, svo þessi gjöf megi halda áfram að gefa um ókomna tíð - okkar manni til ánægju og yndisauka!,“ segir Andrea á Facebook.

Hér má hlýða á lagið Rangur maður:

Textinn er svo eftirfarandi:

𝐌𝐚𝐫𝐬𝐡𝐚𝐥𝐥ö𝐟𝐮𝐧𝐝

Af hverju get ég ekki verið meira eins og Marshall?

Af hverju get ég ekki lifað hálfa öld samt hlaupið um eins og krakki?

Af hverju er ég ekki í vinstri elítunni með Katrínu Jakobs?

Af hverju get ég ekki klifið þverhnípi?

Af hverju er ég ekki Róbert?

Hann er Róbert Marshall, á trylltum tindi, í vitlausu veðri. Hann er inná milli, í skyrt’og bindi, og jakka úr leðri.

Af hverj’er Róbert alltaf svona hress?

Ætl’ann sé aldrei í vondu skapi?

Hvernig fann hann hana Brynhildi? Sem er jafn fáránlega peppuð?

Af hverju get ég ekki spilað á gítarinn (saxófón) og sungið eins og hann Róbert?

Af hverju get ég ekki verið jafn hamingjusamur og Brynka og Róbert í fárviðri?

Hann er Róbert Marshall, sjónvarpsstjarna, og líka í rokki. Hann ber þó einn galla, einn lítinn galla, Hann er í vitlausum flokki!