Tilraunaverkefni á vegum Reykjavíkurborgar sem snýst um að úthluta þjónustuíbúðum aldraðra til háskólanema verður haldið áfram. Á síðasta ári fengu tveir nemar íbúð og samkvæmt skýrslu hefur þetta gefist vel. Frá þessu er greint í Fréttablaðinu.
Velferðarráð Reykjavíkurborgar hefur samþykkt að háskólanemar fái að leigja í þjónustuíbúð í fimm kjörnum fyrir aldraða og starfa við félagslega umönnun og virkni á staðnum. Frá hausti 2019 mun einn dvelja á hverjum stað og bætt við tveimur á ári næstu tvö árin.
Andrea Ósk Sigurbjörnsdóttir, nemi í tómstundafræði, segir í viðtali við Fréttablaðið:
„Ég fór í göngutúra með sumum íbúum en spjallaði síðan við aðra um daginn og veginn. Þá reyndi ég að örva félagslífið á staðnum með því að skipuleggja meðal annars bingó, ljóðakvöld og bjórsmökkun. Það skapaðist mikil stemning þar.“
Segir hún að augu hennar hafi opnast fyrir alls konar áskorunum eldri borgara og þá telur hún að henni hafi eflaust tekist að auka víðsýni íbúanna.
„Ég eignaðist kærustu á þessu tímabili og hún gisti stundum hjá mér og öfugt. Það héldu margir íbúar að þetta væri systir mín og heyrði maður stundum að það væri pískrað á göngunum. En ég var bara opin með þetta og þá var þetta ekkert mál.“