Andleg uppgötvun ólafs: „ég er bara guð. hann er ég [...] „þá verður allt palletta af ást“

Í þættinum Undir yfirborðið sem stýrt er af Ásdísi Olsen er fjallað um það sem er falið og fordæmt. Í fyrsta þættinum var kafað djúpt í það sem er að gerast í andlegu undirheimunum og Ayahascha tekið sérstaklega fyrir. Við erum að tala um DMT efni sem eru meðvitundarvíkkandi, sem örva framleiðslu gleðihormónsins serótónin og valda jafnvel ofskynjunum. Þar hefur fólk lýst stórkostlegri guðlegri reynslu og aðrir vitundarvakningu. Er hópur, sem fer sístækkandi sem telur að megi nota efnið til að lækna fólk. Svo eru aðrir sem fordæma notkun á því og telja það hættulegt.  

Einn af viðmælendum Ásdísar í þættinum var Ólafur Stefánsson, fyrrverandi landsliðsmaður í handknattleik. Í þættinum kemur ekkert fram um það hvort hann hafi prufað að neyta DMT en Ólafur er andlega þenkjandi. Eftir að ferlinum lauk hefur hann sökkt sér enn frekar inn í andleg málefni. Segir Ólafur að þegar fólk fari að veita betur athygli hvað sé að gerast í kringum það og fara dýpra inn í kvenorkuna, þá uppgötvi viðkomandi að hann hafi mun meiri áhrif á hvað sé að gerast í lífi hans dagsdaglega og hvernig hann hafi áhrif á líf sitt. Ólafur segir:

Fyndna tálsýnin er sú að við höfum alltaf aðgreint okkur frá Guði. Það sem er að gerast núna er að þetta er að sameinast. Við erum farin að þora að segja:

„Ég er bara Guð. Þú ert Guð eða Gyðja.“

Ásdís: Hvaða sannanir hefur þú fyrir því að Guð sé hluti af þér?

„Ekki bara hluti. Hann er ég. Og þú líka,“ svaraði Ólafur.

Ásdís spurði þá hvort hann hefði fundið það sjálfur eða skynjað með einhverjum hætti. Ólafur svaraði:

„Ég hef fundið það, nokkrum sinnum. Ég get lýst því; þá ertu bara kominn heim. Þú áttar þig á að þetta er allt þú. Þú ert bara að blekkja þig. Tilfinningin er sú eða að orkan er ekki alvarleg. Hún er ekki hvít, hún er ekki Ave María, hún er miklu meira svona sirkus, svona trúður,“ svaraði Ólafur og bætti við að orkan væri algjört frelsi. Þá bætti hann við:

„Sú orka sem ég samsvara mig við og er að reyna öðlast hugrekki til að fara meira inn í er svona hrekkjalóma orka, og leikurinn, þetta er allt leikur. Leikjaorkan.“

Ólafur sagði að fólk gæfist upp, breytti lífi sínu og tæki meira eftir. Í kjölfarið færi það að njóta vatnsins, vera með náttúrunni og heyra fuglasönginn og yfir hann færðist friður. Ólafur sagði að lokum:

„Þá verður allt svona palletta af ást og afslöppun.“

Hér fyrir neðan má sjá brot úr þættinum. Ef þú vilt sjá þáttinn í heild sinni, smelltu þá hér.