Jónas Kristjánsson er höfundur þess hugtaks að kalla gömlu valdaflokkana tvo, Framsóknarflokk og Sjálfstæðisflokk, „bófaflokka“. Þá einkunn hefur hann valið flokkunum vegna samtryggingar, sérhagsmuna og helmingaskipta. Almannaheill er forystu þessara flokka ekki efst í huga, hefur margoft komið fram í bloggskrifum ritstjórans orðhvata.
Í nýlegri bloggfærslu á jonas.is skrifar gamli DV-haukurinn um aukinn núning meðal stjórnarflokkanna sem hann telur bera keim af því að kosningabaráttan sé handan við hornið:
„Kosningabarátta bófaflokkanna er hafin. Hvor um sig er að framleiða sérstöðu, sem komi að gagni í næsta slag. D hristir hausinn yfir húsnæðisfrumvörpum B og B hristir hausinn yfir ákefð D í sölu Landsbankans. Dregur úr getu bófanna við að ná fram á alþingi margvíslegum skemmdum á samfélaginu,“ skrifar Jónas í pistli og velur henni yfirskriftina: Kosningabarátta bófanna.
Von er á betri tíð eftir því sem fram kemur hjá Jónasi:
„Líklega munu næstu fjárlög einkennast af, að dregið verði í land í ofsóknum á hendur þjóðinni. Á hendur Landspítala og Ríkisútvarpi, skólum og heilsugæzlustöðvum, elliheimilum og hjúkrunarheimilum. Bófar vilja þá sízt verða berir að þjónustu við þá allra ríkustu á kostnað þeirra fátækustu. Innra stríð bófaflokkanna er ánægjulegt.“