\"Loksins, loksins, hér er stigið stórt skref í að dreifa erlendum ferðamönnum betur um landið. Allt Ísland - allt árið,\" segir Njáll Trausti Friðbertsson, flugumferðarstjóri á Akureyrarflugvelli og bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins á Akureyri.
Fleiri norðanmenn hafa tekið undir fögnuð bæjarfulltrúans sem stafar af því að ríkisstjórnin hefur samþykkt að veita 170 milljónum til Flugþróunarsjóðs á þessu ári til að koma á reglulegu millilandaflugi um aðra flugvelli en Keflavík.
Miðað er við að sjóðurinn hafi 300 milljónir til ráðstöfunar á ári næstu ár. Sjö manna stjórn verður yfir sjóðnum og skipar iðnaðar- og viðskiptaráðherra formann án tilnefningar. Aðrir stjórnarmenn verða tilnefndir af forsætisráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra, Markaðsstofu Norðurlands, Austurbrú, Isavia og Íslandsstofu.
Stjórnin ber ábyrgð á að úthlutanir sjóðsins samrýmist ríkisaðstoðarreglum EES-samningsins og þá skal hún setja sér starfsreglur til samræmis við tillögur nefndarinnar að því er fram kemur á mbl.is.