Ánægðar með nýja forsetann

Unnur Brá Konráðsdóttir og Katrín Jakobsdóttir verða gestir í Þjóðbraut í kvöld. Mest verður talað um forseta Íslands, Guðna Th. Jóhannesson. Þær eru vissar um að orð hans skipta miklu máli.

Unni Brá og Katrínu fannst ræða forseta í gær góð. Þær segjast vissar um að það sem hann segir skipti máli og muni hafa áhrif, ekki síst sá hluti ræðunnar sem hann beindi til þingmanna. Þær , sem svo margir aðrir þingmenn, segja að á vorþinginu hafi komið glöggt í ljós hversu vel þingmenn úr öllum flokkum geti unnið saman.

Þjóðbraut er á dagskrá Hringbrautar klukkan 21.00.