Án verðtryggingar geta færri keypt íbúð

Afnám verðtryggingar og þar á meðal hinna svokölluðu Íslandslána, sem eru 40 ára verðtryggð húsnæðislán mun þýða það eitt að mun færri landsmenn geta keypt sér eigið húsnæði.

Þetta er meginniðurstaðan af samtali Sigmundar Ernis við hagfræðinginn Ásgeir Jónsson í þættinum Heimilið sem sendur verður út á Hringbraut í kvöld, en þar er fjallað um rekstur og viðhald heimilisins og allt annað sem viðkemur heimilishaldi.

Ásgeir segir að í reynd hafi stjórnvöld síðustu áratuga gírað allt of marga upp í það að kaupa sér sitt eigið húsnæði, alltof margir hafi í gegnum tíðina gert það af vanefnum og setið uppi með litla sem enga eignamyndun í húsum sínu og hefðu betur leigt sér íbúð frá upphafi. Séreignastefnan hafi í reynd ekki gengið fyrir allan almenning heldur einvörðungu þá tekjumeiri sem ráðið hafi við og ráði enn þann dag í dag við þá dýru lánakosti sem séu í boði hér á landi.

Afnám verðtryggingar muni þýða að hans sögn hærri vexti, skemmri lánstíma, breytilega vexti og þar með meiri áhættu en fylgt hafi verðtryggðu jafngreiðslulánunum - og í reynd sé þá verið að hverfa aftur til ástandsins á markaðnum eins og það var fyrir Ólafslögin 1979 þegar menn framlengdu víxla mánaðarlega á þeim kjörum sem hverju sinni buðust.

Meginatriðið verði þó altént, ef verðtryggð húsnæðislán verða afnumin, að mun færri landsmenn ráði við íbúðakaup.

Heimilið er á dagskrá Hringbrautar öll föstudagskvöld klukkan 20:00.