Nýr sérlegur sendimaður ríkisstjórnar Bandaríkjanna í Úkraínu að nafni Joh Volker lætur í veðri vaka að senn berist Úkraínu amerísk vopn. Hann segir að vopnin yrðu send þeim liðssveitum Úkraínu sem berjast gegn aðskilnaðarsinnum í austurhéruðum Úkraínu og sem Rússland styður.
Kurt Volker talar í umboð ríkisstjórnar Bandaríkjanna. Hann telur að þessar vopnasendingar væru ekki á nokkurn hátt ögrun við Rússland. Vopnin sem kunna að verða send væru öll varnarvopn sem gerði liðssveitum í austurhéruðum Úkraínu kleyft að granda brynvörðum faratækjum uppreinsrmanna og árásarþyrlum þeirra með einföldum og öruggum hætti.
John Volker færðist undan því að fara út í smáatriði. Mat hans á stöðu liðssveita Úkraínu í austurhéruðum byggir á heimsóknum hans til austurvígstöðvanna. John Volker segir að þarna geysi stríð og rjúfa þurfi þá kyrrstöðu sem ríki á austurvígstöðvunum.
Kyrrstöðu sem helst má rekja til yfirburða styrks uppreisnarmanna söku þess stuðnings sem þeir fá frá Rússlandi. Snúa þurfi við tæpir stöðu hersveita Úkraínu. Það megi gera með því að búa hersveitirnar amerískum nútíma varnavopnum sem eru tæknilega afar fullkomin og bannvæn í höndum kunnáttumanna.
Talsmaður skrifstofu forseta Rússlands Dmitry Peskov minnti á aðgerðir eins og þær sem hér um ræðir myndu gera þegar snúna stöðu en þá flóknari. Innanríkismál Úkraínu verða ekki leyst með þeim hætti sem Kurt Volker boðar.
Nánar www.afp.is www.bbc.com www.tass.com