Netrisinn Amazon, fyrirtækið sem byrjaði sem bókaverslun á netinu fyrir 23 árum, er orðið stærra en Microsoft. Markaðvirði Amazon fór í fyrsta skipti upp fyrir verðmæti Microsoft þegar hlutabréf í fyrirtækinu hækkuðu um 2.57% í síðustu viku.
Um leið varð Jeff Bezos, stofnandi og aðaleigandi Amazon, ríkasti maður heims, sem er sætið sem Bill Gates stofnandi Microsoft hefur vermt hingað til.
Markaðsvirði Amazon er nú rétt rúmlega 700 milljarðar dala sem þýðir að það er þriðja stærsta fyrirtæki Bandaríkjanna á eftir Apple, sem er tæplega 850 milljarða dala virði og Alphabet, móðurfyirtæki Google sem er metið á tæplega 745 milljarða dala.
Til gamans má geta að samanlagt markaðsvirði þessarra þriggja stærstu fyrirtækja Bandaríkjanna er 95-föld landsframleiðsla Íslands árið 2016.