Vigdís Hauksdóttir, formaður fjárlaganefndar Alþingis, var í viðtali í morgunútvarpi Rásar 2. Hún var þar til að ræða um skýrsu sína og meirihluta fjárlaganefndar, skýrslu sem Einar K. Guðfinnsson, forseti Alþingis segir vera samantekt, ekki skýrslu.
Talið barst að þingsköpum. „Ég veit að forsætisnefnd þingsins hefur náttúrulega ráðgjöf frá þeim aðilum sem hafa verið að breyta þingskaparlögum hér undanfarin ár. Sem ég tel að hafi verið gert á þann hátt að það er ekki nógu lögfræðilega gott. Það er svona amatörayfirbragð á því. Líklega þiggur forsætisnefnd þingsins ráð frá þessum aðilum, ég veit það ekki,“ sagði Vigdís meðal annars.
Varðandi afstöðu Einars þingforseta sagði hún: „Mikið hefur aumingja maðurinn slæma ráðgjafa. Haldið þið að ég sem þingmaður og Guðlaugur Þór sem varaformaður fari að vinna eitthvert mál í þinginu sem er gegnt þingsköpum?“
Vigdís sagði þingmenn hafa fullt frelsi til athafna; „...fullt frelsi til að gera það sem þeir vilja innan þingsins. Ef það verður framtíðin að forseti þingsins ætlar að fara að setja þingmenn niður eða veita þeim eitthvað tiltal, þá erum við ekki lengur búandi í lýðræðisríki.“