Hugarhvarf, heimildarmynd Páls Steingrímssonar um Alzheimersjúkdóminn, sem frumsýnd var á Hringbraut fyrir röskri viku, verður endursýnd klukkan 20:00 í kvöld vegna fjölda fyrirspurna og óska í þá veru.
Myndin þykir lýsa vegferð konu á leið inn í myrkviði sjúkdómsins á einkar sannferðugan hátt, en þar er staldrað við nokkur helstu leiðarskrefin sem einkenna þessa alvarlegu ellihrörnun og hvernig aðstandendur sjúklinganna upplifa breytta mannsmynd ástvinar síns.
Það er ekki síst fyrir þátt aðalleikaranna Kristbjargar Kjeld og Gísla Alfreðssonar sem myndin verður jafn sannfærandi og raun ber vitni, en óhætt er að segja að þau túlki söguna á áhrifaríkan og trúverðugan hátt.
Þulur í myndinni, sem unnið er í samvinnu við fagaðila, er Arnar Jónsson og leikstjórn annast Lárus Ýmir Óskarsson.
Myndin verðurn endursýnd klukkan 20.00 í kvöld.