Álverið að étast upp innan frá

Stjórn­end­ur og eig­end­ur ál­vers­ins í Straums­vík hafa skapað þá stöðu að fyr­ir­tækið er hægt og ró­lega að ét­ast upp inn­an frá. Mik­il starfs­manna­velta hef­ur verið að und­an­förnu og virðist samn­inga­nefnd ISAL ekki vita hvaða heim­ild­ir hún hef­ur í kjaraviðræðum við starfs­fólk fyr­ir­tæk­is­ins.

Þetta seg­ir Gylfi Ingvars­son, talsmaður starfs­manna, í sam­tali við mbl.is um helgina. Síðasti fund­ur í kjara­deil­unni var á föstu­dag og stóð hann yfir í fimmtán mín­út­ur. Ekki hef­ur verið boðað til nýs fund­ar.

\"Í fram­haldi af þess­ari yf­ir­lýs­ingu for­stjóra Rio Tinto þá vita stjórn­end­ur, eða samn­inga­nefnd ISAL, ekki hvað þessi yf­ir­lýs­ing þýðir og hvaða heim­ild­ir þeir hafa í fram­hald­inu,“ seg­ir Gylfi og því hafi verið til lít­ils að funda leng­ur. Hann seg­ir yf­ir­lýs­ing­una alls ekki í takt við ís­lensk­an raun­veru­leika í kjara­mál­um.

Aðspurður um hvort verið sé að huga að vinnu­stöðvun­um til að knýja fram kjara­bæt­ur seg­ir Gylfi að verið sé að fara yfir mál­in og skoða hvað sé skyn­sam­legt og áhrifa­rík­ast að gera í stöðunni. Verður það skoðað nán­ar í vik­unni.

Hátt í tíu iðnaðar­menn sögðu upp störf­um hjá fyr­ir­tæk­inu fyr­ir ára­mót og seg­ir Gylfi að starfs­manna­velt­an hjá fyr­ir­tæk­inu hafi aldrei verið eins og þess­ar vik­urn­ar.

Tutt­ugu nýir starfs­menn sitji nýliðanám­skeið sem alla­jafna er ekki haldið fyrr en vor­in þegar sum­ar­starf­sólk kem­ur til starfa: \"Stjórn­end­ur eru bún­ir að skapa þá stöðu að fyr­ir­tækið er að ét­ast upp inn­an frá. Þetta er á ábyrgð stjórn­enda og eig­anda fyr­ir­tæk­is­ins,“ seg­ir Gylfi við mbl.is.