Álverð heldur áfram að lækka

Álverð hefur ekki verið lægra í langan tíma og er nú komið niður fyrir 1,679 dali sem merkir að það er töluvert undir því viðmiðunarverði sem notað var við arðsemisúreikninga á Kárahnjúkavirkjun, en það var 1,875 dalir.

Hörður Arnarson forstjóri Landsvirkjunar segir í Frétablaðinu í dag að almennt megi segja að svona lágt álverð hafi neikvæð áhrif á þau álverkefni sem menn séu að skoða á Íslandi og annars staðar - og allar líkur séu á því að þessi þróun dragi úr áhuga manna á að auka afköstin. Hann tjái sig þó ekki um einstök verkefni.

Sigurður Jóhannesson hagfræðingur við Háskóla Íslands telur í frétt blaðsins að lækkun álverðs dragi úr framkvæmdum við álver, jafnt hjá þeim sem sinna virkjanagerð og hinum sem kaupa orkuna.

Ágúst F. Hafberg framkvæmdastjóri hjá Norðuráli segir að þessi þróun álverðs hafi engin áhrif á stækkun álvers á Grundartanga og þá bíði félagsins þess að orkumálin leysist suður með sjó, en áform um álver í Helguvík standi enn.